Opinber trúleysingi skrifar...

Ég gerði það loksins í dag.  Ég sagði mig úr “þjóð”kirkjunni og er nú skráð utan trúfélaga.  Þetta er eitthvað sem hefur verið á dagskránni hjá mér í mörg ár, einfaldlega vegna þess að ég er ekki trúuð og nýti mér ekki þjónustu kirkjunnar.  Þetta hefur þó hingað til ekki verið neitt stórmál fyrir mér, mér hefur bara einhvern vegin ekki fundist þetta skipta miklu máli en núna er ég endanlega búin að fá nóg.
Ég kann foreldrum mínum bestu þakkir fyrir að hafa skírt mig inn í kirkjuna, það var þeirra val og ég virði það en núna er komið að mér að velja. 

Þegar ég var yngri las ég biblíusögur af miklum móð (m.a. stórar, myndskreyttar bækur í bláu bandi sem heita Sögur biblíunnar og voru í 10 bindum) en ég las þær alltaf sem sögur, sumar þeirra finnst mér alveg trúlegt að hafi gerst að einhverju leyti í raun og veru, sérstaklega þær sem fjalla um venjulegt fólk sem sinnir kindunum sínum í ró og næði í afskekktum sveitum og túlkar svo náttúruatburði sem eitthvað guðlegt.  Restin af biblíunni er í mínum huga ekkert nema frumstæðar tilraunir manna til að útskýra náttúruleg fyrirbæri sem þeir gátu ekki skýrt öðruvísi þar sem vísindi voru einfaldlega ekki komin á það stig að það væri hægt.  Og ekki bara í biblíunni heldur flestum öðrum trúarbrögðum líka, hvað er Ásatrú annað en náttúruskýringar?!

Það sem sumir kalla Guð kalla ég eitthvað annað.  Það getur vel verið að það sé til eitthvað annað tilverustig eða eitthvað “æðra” okkur mannfólkinu en það verður þá bara að koma í ljós, ég tel mig einfaldlega ekki hæfa til að segja til um það, hvað þá að trúa einhverjum samansoðnum kenningum um það.  Fjöldi trúarbragða í heiminum er líka eitthvað sem fær mig til að efast; hvernig á maður að velja úr öllu kraðakinu það sem maður vill trúa á?  Af hverju vilja gyðingar ekki trúa að Jesú hafi verið Messías en kristnir menn eru sannfærðir um það?  Hvor hópur um sig telur sig hafa rétt fyrir sér en byggja trúna í raun á sannfæringum annarra, ekki neinum staðföstum sönnunum, enda eru þær ekki fyrir hendi.

En það er víst trúin í hnotskurn, ef maður er tilbúinn til að trúa á annað borð þá verður maður að trúa í blindni, láta almenna skynsemi að mestu leyti lönd og leið og rembast við að láta trúna passa inn í daglegt nútímalíf.  Mér finnst það þó nokkuð augljóst að hún gerir það ekki. 

Kirkjan (og þá á ég við kristna kirkju yfir höfuð; lúterska, kaþólska, rétttrúnaðar eða hvað sem þetta heitir allt saman) er í mínum augum einstaklega úrelt og skinheilagt fyrirbæri.  Þrátt fyrir öll þau mannúðar- og kærleiksboð sem hún heldur fram að séu megininntak kristinnar trúar eru mörg verstu illvirki sögunnar framin í nafni trúarinnar og mannvonskan sem þrífst hjá þeim sem breiða yfir sig hempu kirkjunnar og hvítþvo sig svo með syndaaflausnum og bænum er ótrúleg.  Krossferðirnar, misnotkun á börnum, ótrúlegt harðræði í klaustrum, munaðarleysingjahælum, meðferðarstofnunum og á öðrum stöðum þar sem trúræknu fólki hefur verið falin ábyrgð á þeim sem minna mega sín og svo ekki sé nú minnst á ástandið í heiminum í dag, stríð og misþyrmingar í nafni trúarinnar á alla kanta.  Allir hafa rétt fyrir sér og skjóta þess vegna á nágrannann af því að hann segir eitthvað annað.

Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig stendur einhvers staðar.  Þeir sem eru sannkristnir fara svo sannarlega ekki eftir þessu því hjá hinum heittrúuðu er oft að finna mestu mannfyrirlitningu sem hægt er að sjá í þessum heimi; í þeirra augum eru allir úrhrök sem eru ekki eins og þeir.  Þeir eru hrokinn uppmálaður og líta niður á aðra fyrir að velja öðruvísi líf en þeir sjálfir.  Skilur þetta fólk ekki að það eru ekki allir eins?  Ef ég set þetta upp í eins einfalda mynd og ég get þá finnst sumum rauðar rósir fallegri en bleikar og sumum finnst bleikar vera fallegri en rauðar.  Það er ekkert rétt eða rangt í þessu samhengi, heldur bara eitthvað sem er ekki eins og þú.  Og það er allt í lagi að vera ekki eins og þú! 

Það sem fyllti mælinn hjá mér í dag var niðurstaða á kirkjuþingi um hjónavígslu samkynhneigðra.  Eina jafnan sem er rétt frammi fyrir guði þjóðkirkjunnar er víst tippi+píka=sönnástaðeilífu.  Þetta er svo mikil hræsni að það hálfa væri nóg.  Fyrir rúmum 2000 árum þegar biblían og fylgirit hennar voru skrifuð var samfélag manna allt öðruvísi.  Það voru örfáir sem kunnu yfir höfuð að lesa og skrifa og þeirra skoðanir lita auðvitað allt sem við lesum úr þessu í dag.  Við vitum ekkert hvert viðhorf almennings var áður en einhverjum datt í hug að skrifa þetta niður á blað.  Kannski voru allir bara í gúddí fíling með sína samkynhneigð eins og Grikkir til forna en svo kemur einhver sem titlar sig æðsta prest og með einu pennastriki gerir hann þetta að “synd.”  Nei, ég get ekki trúað því að eitthvað sem var sett á blað fyrir 2000+ árum síðan sé eitthvað sem á að lifa eftir í dag.  Við verðum þá alla vega líka að útskúfa örvhentum og hætta að borða svínakjöt...

Ég sá líka frétt þess efnis í dag að nú væri búið að fá fermingarbörn landsins til að “þýða” þekkt biblíuvers yfir á SMS mállýsku svo fólk gæti fengið þau send í gsm símann sinn.  Þetta sýnist mér vera veik tilraun kirkjunnar til að reyna að búa til einhverja hipp og kúl ímynd til að ná til fólks.  Vitiði hvað væri svo miklu meira hipp og kúl?  Að lifa í alvörunni eftir því umburðarlyndi sem prestar eru svo gjarnir á að tala um í ræðum sínum.  Að mismuna ekki fólki á grundvelli kynhneigðar.  Að bjóða alla velkomna í kirkjuna sem vilja tilheyra henni.  Líka homma og lesbíur. 
Í staðinn ætla þeir að  hrækja á yfirborðið og pússa það upp  en fyrir neðan fína, tæknilega yfirborðið er þetta ennþá íhaldssamasta og hatursfyllsta stofnun heims.

Kirkjan spyr ekki karl og konu sem leita til hennar hvernig kynlífi þau lifa og sér ekki ástæðu til að athuga hvort þau stundi t.d. BDSM kynlíf eða hvort þau hafi farið í threesome eða geri það einhvern tíma í annari stellingu en trúboðanum þrátt fyrir að losti sé synd.  Dauðasynd jafnvel.  Nei, samkynhneigðir eru þeir einu sem eru skilgreindir eftir þessari allra persónulegustu og innilegustu hegðun okkar manna og það er skömm að því að kirkjan skuli mismuna fólki á þeim grundvelli.

Svei þér þjóðkirkja, nú fékk ég nóg, ég hef engan áhuga á að tilheyra þeirri mismununar- og hatursstefnu sem þið berið á borð fyrir okkur...

P.s. ég er ekki sú eina því skv. því sem ég heyrði hjá starfsmanni Þjóðskrár sem tók við úrsagnareyðublaðinu mínu er búin að vera mjög mikil umferð hjá þeim í dag og síðustu daga af fólki sem segir sig úr kirkjunni.  Ég vona að það sé líka af ofangreindum ástæðum...


mbl.is Tillaga um hjónavígslu samkynhneigðra felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Gott hjá þér!  Púkinn lýsti annars sjálfur sínum viðhorfum hér

Púkinn, 26.4.2007 kl. 17:29

2 identicon

Já ég er samkynhneigður og ennþá skráður í Þjóðkirkjuna. Einmitt verið sama hugsun hjá mér að þetta skiptir ekki svo miklu máli, maður hefur alltaf verið á leiðinni að skrá sig úr henni seinustu árin. Verð að fara að drífa í þessu enda er ég ekki bara á móti Þjóðkirkjunni (finnst að slíkt fyrirbæri eigi ekki að vera til í trúfrjálsu landi) heldur er ég almennt ekki trúaður maður. Hinsvegar finnst mér sjálfsagt að trúfélög hafi algjört frelsi til stefnumótunar þó ég sé ekki endilega sammála þeim.

Geiri (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 17:40

3 Smámynd: Anna

Ég er alveg sammála þér Geiri, kirkjan má alveg taka sínar ákvarðanir en ég ætla bara ekki lengur að vera þátttakandi í þeim! 

Ég held líka að umræðan um aðskilnað ríkis og kirkju fari ekki almennilega af stað fyrr en fólk eins og við sýnum okkar afstöðu í verki með úrsögn, helstu rökin fyrir því að taka þá umræðu ekki upp hafa verið tölurnar um hlutfall þeirra sem skráðir eru í kirkjuna, ekki tölur um þá sem í raun sækja þjónustu hennar á einhvern hátt.

Anna, 26.4.2007 kl. 17:44

4 Smámynd: Þarfagreinir

Jújú - trúfélög hafa fullt frelsi til að haga sínum kennisetningum og viðhorfum eins og þau vilja. Hins vegar er það mér aðallega þyrnir í augum hér að þetta er kirkja sem kallar sig Þjóðkirkju, og er styrkt af almannafé og hlýtur blessun yfirvalda - ég er alveg sammála því að slíkt á ekki að vera til staðar.

En á meðan þessi stofnun er þessa eðlis, að hún segist vera fyrir alla landsmenn og er styrkt á almannafé, þá finnst mér að hún hafi bara einfaldlega skertan rétt til að haga sér eftir sínu höfði. Einfaldasta lausnin er auðvitað bara að aðskilja þetta apparat frá ríkinu og koma þar með á sönnu trúfrelsi.

Þarfagreinir, 26.4.2007 kl. 17:44

5 identicon

Ég er sjálf alltaf á leiðinni að skrá mig úr þessari bjánakirkju... mamma leyfði mér ekki að gera það fyrst þegar ég ákvað það en nú hef ég aldur til að gera það sjálf. Hvert fer ég til að gera það annars?

Furða (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 11:27

6 identicon

Ég er sjálf alltaf á leiðinni að skrá mig úr þessari bjánakirkju... mamma leyfði mér ekki að gera það fyrst þegar ég ákvað það en nú hef ég aldur til að gera það sjálf. Hvert fer ég til að gera það annars?

Furða (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 11:32

7 Smámynd: Anna

Furða, það er hægt að prenta út eyðublað á www.thjodskra.is (hægra megin á síðunni, smellir á "Trúfélög," fyllir það út og kemur því til Þjóðskrár sem er staðsett í Borgartúni 24.  Það er líka hægt að fara til þeirra og fylla það út á staðnum...

Anna, 27.4.2007 kl. 12:01

8 identicon

Frábær skrif hjá þér Anna. Þetta ætti að fara lengra.

 Ég sagði mig úr þjóðkirkjunni fyrir margt löngu og er í ásatrúarfélaginu. Ástæðurnar fyrir því að ég gekk í ásatrúarfélagið eru 70% menningarlegar, 25% trúarlegar og 5% ásæðunnar snýst um kúlið

Nornin (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 11:22

9 identicon

Frábær skrif hjá þér Anna. Þetta ætti að fara lengra.

 Ég sagði mig úr þjóðkirkjunni fyrir margt löngu og er í ásatrúarfélaginu. Ástæðurnar fyrir því að ég gekk í ásatrúarfélagið eru 70% menningarlegar, 25% trúarlegar og 5% ásæðunnar snýst um kúlið

Nornin (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 11:27

10 Smámynd: Kolgrima

Frábær skrif! Þú talar fyrir munn ótrúlega margra. Held að þetta mest tilvitnaða vers Gamla Testamentisins sé skrifað fyrir 3000 árum eða fyrr - ekki að það skipti neinu máli nema fyrir það að mér er meinilla við að afstaða kirkjunnar komi óorði á Jesú!

Kolgrima, 7.5.2007 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skoðanabloggið

Höfundur

Anna
Anna
Afar venjulega óvenjuleg manneskja.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • töggur
  • töggur
  • Algrímur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 498

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband