Sniðugt...

...er hægt að fá þessa blöndu til heimilis- og einkanota?!  Það er hræðilegt að koma heim þegar sólin skín svona lágt á lofti, hvert einasta rykkorn í loftinu jafn áberandi og gulur túlípani í rauðum rósavendi.  Og ryk sem svífur í loftinu hlýtur að vera svifryk...

Ryk út um allt og þvottavélin réðist á mig með bláum blossa þegar ég ætlaði að setja hana af stað.  Mér líður ekki mjög húsmóðurlega í dag...


mbl.is Götur í Reykjavík rykbundnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Ragnarsson

Þó að rykkornin verði athyglissjúk í vetrarsólinni er algjör óþarfi að taka of mikið eftir þeim. Það gildir bara að horfa - en sjá ekki!

 Ég hef gert það með góðum árangri!

Víðir Ragnarsson, 27.2.2007 kl. 20:23

2 identicon

Hmm það eru þvottavélar á 19.999 í BT

Er kominn tími á að skipta? 

Agnes (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 20:51

3 identicon

Reddar ekki Rainbow svona rykdæmi? 

Má bjóða þér í þvottaheimsókn til okkar Snúðs, getur sett í báðar vélarnar á meðan við sötrum te úr hvítþyrni

Ísdrottningin (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 17:34

4 Smámynd: Agný

Þó ég sé mjög mikill sólardýrkandi þá verð ég að viðurkenna að ég er ekkert mjög hrifinn af henni blessaðri þegar hún sýnir mér allt rykið ..þá kemst sko upp um mann eða letina við heimilisstörfin...

Agný, 8.3.2007 kl. 12:42

5 Smámynd: B Ewing

Þvottavél úr búð sem hét Bónus Tölvur hljómar síður en svo traustvekjandi.

Hvað rykið varðar þá ætti rakatæki kannski að ná þessu úr loftinu, eða já Rainbow.  Rainbow kostar bara nokkura mánaða venjulegt kaup þannig að ef þig langar í Rainbow verður þú að starfa sem bankastjóri í tvo daga eða svo...

... ömm Þarfi? ... Sko....

B Ewing, 8.3.2007 kl. 17:39

6 Smámynd: Ísdrottningin

Nei B minn, það er líka hægt að kaupa Rainbow heimilis-loftræstitæki á 12,900 krónur að mig minnir en þú getur ekki ryksugað gólf og teppi með því.

Ísdrottningin, 8.3.2007 kl. 19:10

7 Smámynd: Anna

Heyrðu já, Þarfi hlýtur að verða stöðuhækkaður upp í bankastjóra bráðum, það ætti að redda þessu!

Anna, 8.3.2007 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skoðanabloggið

Höfundur

Anna
Anna
Afar venjulega óvenjuleg manneskja.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • töggur
  • töggur
  • Algrímur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 498

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband