Ótrúlegt!

Bandaríkjamenn eru svolítið eins og hrekkjusvínið á leikskólanum, kasta steinum í alla en ef einhver kastar á móti þá verða þeir brjálaðir og klaga og plotta hefnd á morgun.  

Ég held að það hljóti að koma að því að alþjóðasamfélagið losi sig undan ægivaldi Bandaríkjanna, það verður eiginlega að gera það því Bandaríkin eru engan vegin í takt við hugsunarhátt annarra þjóða og það er eiginlega stórhættulegt.  Nú er ég ekki með hlutfallstölur á hreinu en mér sýnist, þegar maður fer yfir söguna, að Bandaríkjamenn hafi komið beint eða óbeint við sögu í flestum stríðsátökum síðari tíma (þar sem ekki er um að ræða borgarastyrjaldir).  Þvílíkur árangur hjá þjóðinni sem telur sig samt í alvörunni vera heimsins bestu fyrirmynd. 

En mottóið þeirra er auðvitað "Do as we say, not as we do."  Það hefur aldrei þótt vænleg stefna í uppeldismálum, hvað þá alþjóðastjórnmálum...


mbl.is Bandaríkin hafna því að hætt verði að nota klasasprengjur í stríði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Jón

Sovétlíkingin á ágætlega við hjá þér. Land of the Free er eitthvert mesta rangnefni sem til er. 

Að maður tali nú ekki um neitunarvald þeirra í SÞ, þar sem þeir stoppa allt sem heitir gagnrýni á Ísrael, og aðgerðir í þeim málum. 

Einar Jón, 24.2.2007 kl. 14:07

2 Smámynd: Agný

BNA ( útleggst sem "bananalýðveldi"...)hefur sjaldnast átt upphafið að styrjöldum..en þeir hafa lagt hlutina/málin þannig upp að þeir koma inn á eftir hinum og skilgreina sjálfa sig sem hinn frelsandi engill fyrir þá ´þjóð sem þeir hafa "valið". Í  WWII þá tilkynntu þeir heimsbyggðinni það að þeir myndu ekki ekki taka þátt  nema að það væri ráðist á þá beint eða á þjóð sem heyrði undir þá = Pearl Harbour..og því hefur verið haldið fram að þeir hafi vitað af fyrirhugaðri árás Japana á flotann..en þeir leyfðu því að ske til þess að þeir gætu tekið þátt..sennilega til að prófa hvernig kjarnorkubomburnar myndu nú virka á menn og mannvirki....Svo í dag ..það er svooo rosalega lýðræðislegt að innleiða lýðræði hjá öðrum þjóðum með vopnavaldi......en það endar pottþétt á því að "lýðurinn" ræður = "lýðræði".. held að þeir rugli svolítið saman alræði og lýðræði...Held þeir ættu að reyta arfann úr eigin garði áður en þeir fara að hanna garð nágrannans...

Agný, 5.3.2007 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skoðanabloggið

Höfundur

Anna
Anna
Afar venjulega óvenjuleg manneskja.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • töggur
  • töggur
  • Algrímur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 497

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband